Reykjarvík er klikkuđ!!
Hvað er að ské í reykjavík? Þessi borg er bara á leið til glötunnar!! Ég skal sko segja ykkur sögu sem fær ykkur til að gapa!
Sko..í gær fór ég til bjargar og ég og hún og Haukur litli frændi hennar smelltum okkur á Juno sem er s.s. bíómynd! Og hún var bara mjöög fín!
Svo komum við heim og ætluðum að fara að sofa þegar Ingibjörg sys hringir í mig og biður mig að skutla sér niður í bæ. Ég segist vera til í það svo við björg drösluðumst út og sóttum syturina og félaga hennar og skutluðum þeim. Svo þegar við erum nýkomnar á laugarveginn þá standa 2 gaurar á miðri götunni..ég flauta á þá svo þeir færi sig því ég var í óðaönn að reyna að keyra þarna..en neinei...annar gaurinn alveg “uu nei skiluru” og varð bara e-ð pirr og henti sígarettunni sinni á framrúðuna hjá mér...mjög þroskað skiluru...og ég varð þreytt á þessu því hann var ekkert að færa sig svo ég keyrði svolítið áfram til að reyna að koma honum í skilning um það að ég væri að reyna að komast...en nei þá trompast gaurinn og fer að sparka í stuðarann og láta öllum illum látum! Ég reyni að komst áfram án þess að keyra þó á hann..og hann verður sturlaður og hoppar uppá húddið á bílnum mínum og stampar ofan á rúðuna hjá mér svo hún brotnar...hann braut fokkans rúðuna hjá mér í spað! Hún rétt hangir saman! Ég varð öll útí pínu litlum glerbrotsflísum..og það er ennþá í buxunum! Aaalllavega...ingibjörg var sko ekki sátt með frammistöðu kappans og stekkur út og ætlar að spjalla pínu við hann...og hann ætlaði að berja hana en labbar svo bara áfram...ingibjörg hleypur þá á eftir honum og hann varð svo skíthræddur að hann tók bara á rás! Það var reyndar fyndið..einhver ægilegur nagli smeykur við svona gellu!
En jesús hvað mig langaði að klípa af þessum gaur punginn með geldingartöngunum hans pabba! Ohh hvað ég hefði notið þess! Ég náttúrulega lenti í algjöru sjokki og var eins og lítil smástelpa og fór að skæla! :s en það má alveg stundum! Haldiði að ég hafi verið töff að rúnta niður laugarveginn skælandi og með brotna framrúðu ;) ægilega smægó! En svo fórum við björg bara heim að sofa..ægilega gott að kúra hjá þessari skvísu..þótt plássfrek sé! Hún er svo mikið æði!
En að örðum málefnum! Mér finnst ekki gaman þegar fólk er að koma með börnin sín á kaffihús og gefa þeim seríos! Því það þýðir að þau henda þeim öllum niður á gólf og ég þarf að ryksuga! Því að ef ég reyni að sópa þau þá skjótast seíósin öll þvers og kruss eins og þythokkí!! Ohh pirrrr.....
ókei
Valentínus..
æjj þessi blessaði valentínus kominn og farinn..og öll mín rómatík byrluð inni! kannski ekki alveg því ég gaf björgu, valentínusinni minni, smá sjúttulaði!þessi dagur saman stóð semsagt af
- útsofi
- missa af strætó
- labba í vinnuna
- vinna
- sturta
- Pabbinn
- rúntur
- kaffihús
- slúður
- heim
en svo eftir þetta fórum við björg á kaffi parís og hittum þar láru og við spjölluðum heeeillengi..og ekki get ég sagt að umræðuefni okkar væru einhæf þar sem við óðum úr einu í annað og ekki alltaf það penasta sem við gátum talað um...ég ætla ekki að taka dæmi. en akkúrat á þarna át ég kvöldverðinn minn sem samanstóð af ógeðslega góðri súkkulaði köku og kaffi...kannski ekki það besta...en samt það allra besta!!
en svo er björg að fara austur á morgun svo ég veit eiginlega ekki hvað ég á af mér að gera!
hefur einhver hugmynd?
nennir einhver að leika?

en nú skal ég sofa..ég er sybb!
Sooosum...
hvaða...mikil ósköp getiði ekki beðið eitt andartak....
púntum þetta bara
- það er óveður og ég kemst ekki heim
- athugun kl. 7:40 í fyrramálið
- mig langar að komast heim á þorrablót
- stelpurnar eru hér hjá mér
- þ.e.a.s. björg og auðna...og svo er ingibjörg þarna líka
- ég er að horfa á stelpurnar
- þær eru fyndnar
- ég nenni aldrei að læra!
- ég elska Ilm Kristjánsdóttir
- ég er búin að eignast sætasta frænda EEEVER!!!
- mig langar í sumar..
- það er bara vindur!
- ég er alltaf að afgreiða selebba í vinnunni
- mér finnst gaman í vinnunni!
- ég er að vinna með ágætu fólki
- ég er alltaf kölluð magnús þar ef ég geri e-ð af mér
- ojj mér leiðist
- ég nenni ekki að blogga!!!
bææ....
ekki satt?
Já krakkar mínir. Ég er komin austur á boginn! Og þar er sko sleipt! Ég fór í svo miklu flýti austur að ég náði ekki að kveðja alla! Ég hitti ekki á ömmu né Sessu og hitti ekkert Lísbet og náði ekki að fá lítið jólaknús frá Katrínu Mist og Mæju og Sunnu. En ég mun snúa aftur fyrr eða síðar. Vonandi milli jóla og nýárs. J En já ég kom austur og þegar ég steig upp í bílinn þegar ég ætlaði að halda austur tókst mér að detta undir bílinn minn. Ég semsagt lyfti annari löppinni til að setja hana inní bílinn og þar sem ég stóð á öðrum fæti rann hinn fóturinn til og lenti líka svo pent undir bínum og ég lá þarna í svellinu með annan fótin uppí bílnum og hinum undir honum. Sem betur fer held ég ekki að nokkur hafi séð mig..hefði litið heldur kjánalega út þarna..klofvega á hliðinni á bílnum. En um leið og ég kom í egs smellti mér strax á hallormstað til að framreiða eitt stykki pils á hálftíma. Það var ógó illa gert! En ég bjargaði kannski Gaggó ástini fyrir horn...en svo í dag fór ég með köttin í ormableytu..þar sem bara smá vökvi er settur í feldinn hennar...skildi ekkert í þessu. En ég á samt sæta kisu! Ég á eftir að sakna hennar svo illilega eftir áramót! Hún er orðin svo háð mér að það er æðislegt. T.d. núna sit ég hér og pikka á tölvuna og alltaf þegar ég sit og er í tölvunni þá kemur hún alltaf og leggst á magann á mér...svo sæt!!!! Allavega..svo þegar heim var komið arkaði ég galvösk út í Áshúsin, þar sem við geymum nokkar kindur. Það var semsagt lagt í mínar hendur að gefa því fé morgunhressingu. Já en eins og ég kom örlítið inná hérna áðan þá er brjáluð hálka. Og það er smá mishæð héðan og út í Áshús sem eru í c.a. 250 metra fjarlægð og þar þarf að labba upp ponsulitla brekku. Ég semsagt rogaðist þangað í öllum mínum klæðnaði og þegar kom að brekkunni þá ætlaði ég ekki upp að drífa. En eftir að hafa náð dauðahaldi í skottið á hundinum sem veinaði einhver ósköp yfir þessum þyngslum sem á hann seig þá náði ég að komast næstum á “toppinn” (ef að topp má kalla því þetta var svo aflíðandi) en þá gripu púkarnir í taumana og ég byrjaði að renna til baka. Og þar sem ég er að jafna mig eftir streptukokka og er nánast raddlaus heyrðist ekkert í mér þegar ég reyndi að öskra eins og hæna með eggjastíflu. Enginn nema hundarnir heyrðu hátíðnina sem barst frá mér. En ég náði á áfangastað og henti nokkrum heyflygsum í átt að rollugreyjunum. Svo á leiðinni til baka slædaði ég líka svona niður brekkuna sem ég hafði áður verið að kjást við og er ég náði jafnsléttu munaði ekki miklu að ég flygi beint á afturendann en rétt náði að halda mér stöðugri með svo miklu sprikli og sparki í allar áttir að ég held svei mér þá væri hægt að nota sem regndans í einhverjum þjóðfélögum. Þegar ég hafði náð jafnvægi á ný fór ég yfir atburðinn í huga mér og áttaði mig á hve fyndið hefði verið að sjá mig þarna og ég fór að skelli hlægja..og áttaði mig þá á því að ég var alein að skelli hlægja...og hundarnir alveg bara ha? Svo kom ég heim og komst að því að ég náði sögu J alveg ýkt stolt af sjáfri mér. En ég á alltaf 2 próf eftir enn! Lá veik heima 2 próf í röð og þarf að taka sjúkrapróf á mánu- og þriðjudaginn. Og svo reyndi ég fyrir mér í guitarhero sem b.t.w. sökkar feitan hrút!!!!!! Þetta er heimskur sjálfkynhneigður leikur sem ætti að brenna í heitasta helvíti!!! Ég hitti alveg á takkana...það er bara einhver lítill kall inní fjárans leikjatölvunni sem neitar að leyfa mér að vinna!!!! Djísus kræst!! Jáhh...þá er það komið á hreint...en svo eru bara jólin að koma...og Bugga að koma heimijá ókei..og látum buggu heita hund og förum að segja "ekki satt" !!! :)
"so you are in to feet!?" "no, children" "isn't it illegal?"
já two and a half man er virkilega málið þessa dagana...ásamt mandarínum!allavega...ég nenni nú ekki að blogga langt blogg...en mig langaði bara að deila með ykkur leiðinlegum fréttum! já ég er með streptukokka (eða hvernig þetta er skrifað)! það er ógeðslegt! ég fékk hálsbólguna á mánudegi, en drullaði mér ekki til læknist fyrr en á föstudegi...þegar ég var hætt að geta kyngt...og búin að liggja heima með hita og gubbupest! ég lá í alveg hroðalegri sjálfsvorkun, þar sem ég var ein alla vikuna og enginn gat sýnt mér samúð...en svo fór ég í heimsókn til sessu á fimmtudeginum og fékk smá samúð frá henni og mér snar skánaði! það var gott!
en vegna þessa streptó þá hef ég þurft að sleppa 2 prófum í vikunni, og þarf af 3...! ég tek semsagt 2 sjúkrapróf! en fæ að taka þau á egs...svo ég kem bráðum heim!
en mig langar ekki að kveðja alla hér strax...ég er loksins að fitta inn! ég var alveg búin að gleyma hvað stelpurnar voru skemmtilegar og hvað mæja er orðheppin...það er æðislegt! við fundum t.d. upp orðið bátahár! það er alveg gebba flott...allavega 2 og hálf gebba sko..neinei...nett rugl..
en vandræðalegt kom fyrir mig í apótekinu um dagin..ég var að sækja lyfseðil og þurfti að bíða smá svo ég stóð bara þarna eins og illa gerður hlutur og heyrðu útundan mér hjón að reyna að ákveða einhverja ilmlykt í gjöf og voru að lykta af hinu af þessu bodyspeiji..og svo fylgdist ég svona leynt með...og þau voru búin að skoða allar nema rassberja...og konan spreyaði á manninn sinn til að finna lyktina, og svoldið vel og karlinn sagði eitthvað í þá áttina að þetta væri nú komið nó hjá henni, og mér stökk bros..og konan sá það...og brosti á móti og við fórum að skelli hlægja..þarna inní miðju apóteki...jii..ég alveg afsakaði mig í bak og fyrir en sem betur fer kallaði afgreiðslukonan á mig svo ég komst út úr þessum aðstæðum!
en jájá...
Björg ástin er að koma heim! :D endalaust gaman!
við ætlum að prófa að detta í það á virkum degi....ég hlakka til! :)
jájá...ég ætti að reyna að sofa svolítið! :)
bleeehh..
bara ađ kvarta!!
úff ég á svo bágt!!
ég get ekki sofið..
svaf 3 tíma síðustu nótt
ég vil ekki læra undir munnlegt dönskupróf
og alls ekki undir sálfræðipróf
mig langar í sund
ég er með kisuhár á nefinu og nenni ekki að taka það..
það kítlar mig..
ég tók það
ég sakna vinkvenna minna
mér leiðist svona einni að nóttu til!
ég var næstum lasin um helgina..
það rétt slapp með svoldið af verkapillum
ég er með skrámu á nefinu
eftir að kisa datt ofan á andlið á mér á meðan ég svaf
mér er kalt á tánum
skólinn er að verða búinn
ég fer bara í 3 próf
það er gott bil á milli allra þeirra
ég er að horfa á friends
mér finnst líka two and a half man skemmtilegir
litli gaurinn er alveg eins og Mattías Pétur frændi minn
ég hlakka til þegar Sessa eignast barnið sitt
ég veð úr einu í annað
þetta fer að verða svolítið ruglandi blogg
það er allt í góðu því ég er hálfrugluð núna í kollinum
ég heyri í kisu
kisa var að koma til mín
hún malar hátt
mér leiðist
það er enginn á msn til að tala við....
hvað er að gerast í heiminum í dag?
er búið að finna ósama bin laden?
ba bababba ba ba ba ba baaa baabaa bababababababababba...
stefið úr how i met your mother
það eru bestu þættir í heimi
síðasti þáttur var einstaklega fyndinn
*dæs*
lísbet grönvald var að sænast inn
hún kemur bráðum heim!
ég hlakka til..
ég hlakka líka til jólanna
ég hlakka mest til að flytja til gingó og fara á kaffihús með buggó
lakið mitt er svart á litinn
ætti ég að hætta?
ég veit sosum ekki hvað ég gæti skrifað meira
mig langar bara í sturtu og gera mig tilbúin í skólann...
á samt ekki að mæta fyrr en eft 11 tíma...
klukkan er núna 02:04
ég fer brátt að vera búin að vaka í sólarhring
5 tímar í það
mér líður eins og ég sé að tala við sjálfan mig
ég samdi brandara...
þegar fólk er orðið hæfilega hífað...þar að segja af áfengi, og þarf ekki að drekka meira og ef það drekkur meira þæá deyr það bara...þá er það svona full nægt! :)
ég hló
æjj björg... ég veit hvað þú hugsaðir...
þú hugsaðir...æjj greggóó...
sparaði þér tíma þarna
ég er með óeyrð í fótunum!
jæja...þetta fer að vera komið gott...
ókei bæ
já og ég lýsi eftir fólki til að hjálpa mér að læra undir munnlegt próf í dönsku og lokapróf í sálfræði!
sá hinn sama má alveg vilja koma með mér í sund líka!
góða nóttina þá...
Besta helgin ađ baki!
já krakkar mínir! ég var í Dk um helgina að heimsækja bestu stelpu í heimi! hún vinni ekki að við værum að koma svo við smygluðum okkur inn til landsins og heim til systur hennar og öskruðum svo ÓVÆNT!! þegar björg labbaði inn!! hún var hissa! það var gaman. En svo fórum við bara að drekka bjór og svo smelltum við okkur til Svíden á föstudeginum og vesluðum svolítið og töluðum íslensku við afgreisluskvísurnar á Subway! það var nett...heyrðu já svo var pínu meira drukkið af bjór...( ég drakk samt ekkert því ég þurfti þess ekki "i was drunk on you") og svo sá ég Björgu standa sig eins og rokkstjarna á bæði bassa, trommum og gítar...jiii hvað mér leið eins og á tónleikum...eða svona næstum!
en já....svo er skólinn alltaf að stríða mér....3,3 er ekki ásættanleg einkunn!
æjj ég nenni ekki að blogga!
en ég hlakka samt til jólanna hvað sem því líður og það hefur nú ekki gerst í nokkur ár skal ég sko segja þér!
svo er ég að pæla í því að smella mér suður eftir áramótin og legja með henni Gögg sys...(eða bara Ingibjörgu systur) mér leiðist svo að búa svona ein...! og þá verð ég líka nær Björgu ást!!!
já ókei bæ
nei bíđiđ nú hćg!!
hvað varð um allan lakkrísinn í lakkrístoppísnum?? ég er að borða svona ís núna og fékk 2 auma lakkrísbita! fyrir mér er þessi lakkrís nauðsyn því mér finnst ísinn hreint og beint bragðvondur!! í byrun sumarsins, þegar ég smakkaði hann fyrst, var ísinn stútfullur af lakkrís og ég hélt að ég hefði fundið drauma ísinn...en eftir því sem leið á sumarið og þegar haustið skall á þá fóru ófétin að spara lakkrísinn!! djísus kræst!!
en já...ég er að reyna að finna allar hugsanlegu ástæður til að þurfa ekki að læra undir sálfræði próf sem er á miðvikudaginn! ég er búin að taka til og ryskuga og vaska upp og svo fór ég í sturtu og svo þurfti ég líka svona líka að blogga en ég held að ég eigi ekkert eftir nema að læra!!
já þetta er skítt....en ég hef heldur ekki hugmynd um hvað ég er að læra í sálfræði! við gerum ekkert annað en að horfa á dr. phil og það sorglega er að ég er yfirleitt búin að sjá þættina! ég er sorgleg....sem sagt það sem ég er að reyna að segja er að mér finnst þessi sálfræði ekki skemmtileg...reyndar er "sálfræðifélaginn minn" hann Sindri fínn gaur og bjargar oftar en ekki tímunum fyrir mér!
takk Sindri Sálfræðifélagi *vink-vink* (þ.a.s. ef hann les þetta nokkurntímann...)
jæja...einungis 39 dagar í dk!!!!! ég hlakka svo til!!! í því alla daga...!!!
*extra-glöð*
ég að líka að vera að gera ritgerð um Svein Björnsson....hann er ekki í náðinni hjá mér þessa daganna....ef þið viljið gefa mér upplýsingar um þennan umtalaða karl, endilega hafið samband við mig!!!
annars finnst mér leiðinlegt að blogga! vissuðiða?
ég er samt komin með torrent og geri ekki annað en að niðurhala ýmsum gögnum!!
og ég elska Barney...þótt hann sé hommi...ég ætla að giftast honum...og reyndar Matt Bellamy líka....og gaurnum í hairspray þessi með skakka brosið....og ýmsum fleiri....versta er að mig langar ekki að giftast...en ef þessir gaurar biðja mín þá þarf ég sko ekki að hugsa mig um!!
ég er að fara heim um helgina *þrefalt bros fyrir því* kannski að kíkja á óvissuball og læra eitt stykki ritgerð og svona...og kannski draga nokkur lömb...er samt reyndar ennþá mér skrilljón marbletti á lærunum eftir þessi 6 lömb sem ég dró þar seinustu helgi...
"Ross bruises like a peach.."
"chandler control your women!"
já en ég veit það annars ekki...nenni ekki að læra svo ég er að reyna að draga þetta blogg eins lengi og ég get!....get ekki meira....JÚ!!
ég hata myspace...ég fatta engann tilgang í því!! og ekki einu sinni reyna að segja mér að þetta sé skemmtilegt og bla bla eða að hætta að kvarta yfrir þessu...ég geri það bara ekki neitt fyrr en ég fæ einhvern með mér í lið!!!!!
ókei bæ
illa kuflađ blogg!!
- ég nenni ekki að gera öðruvísi blogg en í punktum
- mér leiðast langar setningar
- og innihaldsríkar
- ég var að smala seinustu helgi..
- kisa er að leika sér með ósýnilega vini sínum
- að vera kuflaður er nýja orðið
- kennarinn minn skrifaðir "þeim vantar..." upp á töflu í gær
- ég leiðrétti hann
- ég er að fara að horfa á nágranna
- ég nenni ekki ða vera legnur í sögu
- né ensku...
- ég sofnaðir í sálfræði í morgun
- nágrannar eru að byrja
- ég nennti ekki að taka lengur til svo ég tók pásu
- ég ætla að fara að horfa á nágranna!
- bæ
