"so you are in to feet!?" "no, children" "isn't it illegal?"
já two and a half man er virkilega málið þessa dagana...ásamt mandarínum!allavega...ég nenni nú ekki að blogga langt blogg...en mig langaði bara að deila með ykkur leiðinlegum fréttum! já ég er með streptukokka (eða hvernig þetta er skrifað)! það er ógeðslegt! ég fékk hálsbólguna á mánudegi, en drullaði mér ekki til læknist fyrr en á föstudegi...þegar ég var hætt að geta kyngt...og búin að liggja heima með hita og gubbupest! ég lá í alveg hroðalegri sjálfsvorkun, þar sem ég var ein alla vikuna og enginn gat sýnt mér samúð...en svo fór ég í heimsókn til sessu á fimmtudeginum og fékk smá samúð frá henni og mér snar skánaði! það var gott!
en vegna þessa streptó þá hef ég þurft að sleppa 2 prófum í vikunni, og þarf af 3...! ég tek semsagt 2 sjúkrapróf! en fæ að taka þau á egs...svo ég kem bráðum heim!
en mig langar ekki að kveðja alla hér strax...ég er loksins að fitta inn! ég var alveg búin að gleyma hvað stelpurnar voru skemmtilegar og hvað mæja er orðheppin...það er æðislegt! við fundum t.d. upp orðið bátahár! það er alveg gebba flott...allavega 2 og hálf gebba sko..neinei...nett rugl..
en vandræðalegt kom fyrir mig í apótekinu um dagin..ég var að sækja lyfseðil og þurfti að bíða smá svo ég stóð bara þarna eins og illa gerður hlutur og heyrðu útundan mér hjón að reyna að ákveða einhverja ilmlykt í gjöf og voru að lykta af hinu af þessu bodyspeiji..og svo fylgdist ég svona leynt með...og þau voru búin að skoða allar nema rassberja...og konan spreyaði á manninn sinn til að finna lyktina, og svoldið vel og karlinn sagði eitthvað í þá áttina að þetta væri nú komið nó hjá henni, og mér stökk bros..og konan sá það...og brosti á móti og við fórum að skelli hlægja..þarna inní miðju apóteki...jii..ég alveg afsakaði mig í bak og fyrir en sem betur fer kallaði afgreiðslukonan á mig svo ég komst út úr þessum aðstæðum!
en jájá...
Björg ástin er að koma heim! :D endalaust gaman!
við ætlum að prófa að detta í það á virkum degi....ég hlakka til! :)
jájá...ég ætti að reyna að sofa svolítið! :)
bleeehh..
09. desember 2007 klukkan 05:42
Margrét Ragna Ţórarinsdóttir
Margrét Ragna Ţórarinsdóttir
