Reykjarvík er klikkuð!!

Hvað er að ské í reykjavík? Þessi borg er bara á leið til glötunnar!! Ég skal sko segja ykkur sögu sem fær ykkur til að gapa!

Sko..í gær fór ég til bjargar og ég og hún og Haukur litli frændi hennar smelltum okkur á Juno sem er s.s. bíómynd! Og hún var bara mjöög fín!

Svo komum við heim og ætluðum að fara að sofa þegar Ingibjörg sys hringir í mig og biður mig að skutla sér niður í bæ. Ég segist vera til í það svo við björg drösluðumst út og sóttum syturina og félaga hennar og skutluðum þeim. Svo þegar við erum nýkomnar á laugarveginn þá standa 2 gaurar á miðri götunni..ég flauta á þá svo þeir færi sig því ég var í óðaönn að reyna að keyra þarna..en neinei...annar gaurinn alveg “uu nei skiluru” og varð bara e-ð pirr og henti sígarettunni sinni á framrúðuna hjá mér...mjög þroskað skiluru...og ég varð þreytt á þessu því hann var ekkert að færa sig svo ég keyrði svolítið áfram til að reyna að koma honum í skilning um það að ég væri að reyna að komast...en nei þá trompast gaurinn og fer að sparka í stuðarann og láta öllum illum látum! Ég reyni að komst áfram án þess að keyra þó á hann..og hann verður sturlaður og hoppar uppá húddið á bílnum mínum og stampar ofan á rúðuna hjá mér svo hún brotnar...hann braut fokkans rúðuna hjá mér í spað! Hún rétt hangir saman! Ég varð öll útí pínu litlum glerbrotsflísum..og það er ennþá í buxunum! Aaalllavega...ingibjörg var sko ekki sátt með frammistöðu kappans og stekkur út og ætlar að spjalla pínu við hann...og hann ætlaði að berja hana en labbar svo bara áfram...ingibjörg hleypur þá á eftir honum og hann varð svo skíthræddur að hann tók bara á rás! Það var reyndar fyndið..einhver ægilegur nagli smeykur við svona gellu!

En jesús hvað mig langaði að klípa af þessum gaur punginn með geldingartöngunum hans pabba! Ohh hvað ég hefði notið þess! Ég náttúrulega lenti í algjöru sjokki og var eins og lítil smástelpa og fór að skæla! :s en það má alveg stundum! Haldiði að ég hafi verið töff að rúnta niður laugarveginn skælandi og með brotna framrúðu ;) ægilega smægó! En svo fórum við björg bara heim að sofa..ægilega gott að kúra hjá þessari skvísu..þótt plássfrek sé! Hún er svo mikið æði!

 

En að örðum málefnum! Mér finnst ekki gaman þegar fólk er að koma með börnin sín á kaffihús og gefa þeim seríos! Því það þýðir að þau henda þeim öllum niður á gólf og ég þarf að ryksuga! Því að ef ég reyni að sópa þau þá skjótast seíósin öll þvers og kruss eins og þythokkí!! Ohh pirrrr.....

svo var verið að skíra elsku frænda minn í gær! Hann heitir Friðjón Ingi eftir móðurafanum! og afinn hélt á honum við skírnina og ég hélt án djóks að gaurinn myndi rifna úr motni! hann var svo mikil mús! :)


ókei
09. mars 2008 klukkan 15:58
Margrét Ragna Þórarinsdóttir
Björg skrifar ...
við hefðum bara átt að taka þennan mann, klípa af honum bæði eistun, leggja þau á götuna og láta hann horfá okkur keyra yfir þau nokkrum sinnum. Þegar við sjáum þetta ógeð næst, þá skal ég sko trampa á pungnum á honum..... ekki að ég muni þora því, ég verð pottþétt lamin í kjötbollu. :/ Tökum bara Ingibjörgu með í það.. hann er svo drulluhræddur við hana! :)

það er líka baara best þegar þú nennir að kúra hjá mér! :) ..ég áfellist þig samt ekki fyrir að þurfa að taka pásur inná milli, því ég breytist yfirleitt í sæapa þegar ég sef. :/

löf löf löf :*
09. mars 2008 klukkan 16:09
Margrét Ragna skrifar ...
sæapa? nei elsku...af plássinu sem þú tekur að dæma þá breytist þú í fljóðhest með 5 fætur og 3 hala og 1 rófu!
09. mars 2008 klukkan 16:22
Bjarni skrifar ...
Shiiiiit ..klikkað lið :S

Ég sá samt gaur sem var dauður úti á götu hliðina á Bæjarins Bestu, það var fyndið hehehe :D
09. mars 2008 klukkan 16:44
Margrét Ragna skrifar ...
ég vona að það hafi verið sami gaurinn!!
09. mars 2008 klukkan 18:51
Bríet skrifar ...
já ég fór einmitt að djamma eitt sinn í bænum edrú, með að mig minnir Harfnhildi og Björgu og ég varð vitni af slagæðablæðingu inná Subway eftir að gaur var skorinn með brotinni flösku og gaur datt og rak höfuðið í staur og rotaðist og fékk gat á hausinn og ég hef bara ekki farið niður í bæ síðan.... klárlega safnast saman allir geðsjúklingarnir á Laugarveginum og ég fer ekki þangað fyrr en ég verð ein af þeim eða allavega verð haldin sjálfseyðingarhvöt....

Kv, Bríet sem hefur komið tvisvar á Laugarveginn á ævi sinni... og aldrei litið þar inní búð BTW. bara tattoostofu, hehe....

Ætli ég sé eina tvítuga stelpan á landinu sem hefur aldrei farið inní búð á Laugarveginum?
09. mars 2008 klukkan 19:56
Kristín skrifar ...
Vá þú lendir alltaf í einhverju dramatísku í stórborginni.........

Endilega kíktu á kaffi.blogspot.com þetta er síða sem við kaffinörðin erum með og ég verð að segja að við bloggum um flest annað en kaffi......
09. mars 2008 klukkan 20:14
Margrét Ragna skrifar ...
Hey, ég sé Ingibjörgu fyrir mér, hlaupandi á eftir þessum gaur, þó mér væri ekki hlátur í huga við lesturinn fór ég að skellihlæja þegar ég sá þetta svona fyrir mér, var hún nokkuð með gaffal í hönd?
Ingibjörg...þú ert hetja.
10. mars 2008 klukkan 22:15
Ingibjörg María skrifar ...
hann var allavega ansi hræddur gaurinn
11. mars 2008 klukkan 11:46

Skrifa athugasemd

Um mig...

Hæhæ..velkomin á síðuna mína! Margrét Ragna heiti ég og kem frá austur-héraði. Ég er búsett heima hjá foreldrum mínum og bróður. Ég er fædd 18. apríl árið 1988 á Egilsstöðum.
Vonandi er þetta leshæft blogg...njótið heil.. :)

Auglýsing

Speki

Sælir eru fattlausir, því þeir bara hreinlega fatta ekki hvað þeir eru vitlausir!!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

hvað af eftirtöldu er réttast um mig?

Klukkan

Leit

Leikur dagsins